14. apríl 2008

Lausar stöður við Akurskóla

Lausar stöður við Akurskóla

Börn eru gleðigjafar skapandi og fróðleiksfús

Akurskóli auglýsir stöður grunnskólakennara og þroskaþjálfa fyrir skólaárið 2008 -2009, vegna mikillar fjölgunar nemenda við skólann næsta skólaár. 

Umsjónarkennara á yngsta stigi, miðstigi og elstastigi

Tungumálakennara í ensku og dönsku

Heimilisfræðikennara

Kennara í hönnun - smíði  

Sérkennara

Þroskaþjálfa

 

Í Akurskóla er lögð áhersla á náttúruvísindi, fjölbreytta kennsluhætti og teymisvinnu starfsmanna.

Við skólann starfar kraftmikill hópur starfsmanna sem hefur unnið að mótun skólastarfsins með þátttöku foreldra. Skólinn er staðsettur í Innri – Njarðvík í göngufæri við tjarnir, fjöru og einnig er að finna fjölbreytt gróðurlendi í nágrenninu sem er nýtt í vettvangsnámi og útikennslu. Í nýbyggðu húsnæði skólans er fyrsta flokks aðstaða til náms og kennslu.

Í störfin er leitað að einstaklingum með kennsluréttindi sem hafa lipurð í mannlegum samskiptum og metnað til að gera betur í dag en í gær.

Nánari upplýsingar gefur Jónína Ágústsdóttir skólastjóri í síma 420 4550 og 893 4550.

 

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla