Laxdæla í 9. bekk á nýstárlegan hátt

Þessa dagana eru nemendur í 9. bekk að lesa og kynna sér Laxdælu. Það væri ekki í frásögu færandi nema að nemendur eru að nýta sér óhefðbundinn miðil til að koma sögunni á framfæri. Nokkrir nemendur hafa stofnað instagram aðganga í nafni sögupersóna í Laxdælu og segja söguna með myndum, texta og myllumerkjum.
Á instagram er nú að finna persónur eins og official.kjartan.olafsson, bolli_thorleiksson, hrefn.aasgeirs, helgi.hardbeinason og gurdrun.osvifursdottir.
Þar deila þau reynslu sinni og nota texta og myllumerki eins og:
bolli_thorleiksson: Annari tilraun lokið og talaði ég við Ólaf „föður minn“ til að biðja um stuðning og sagði hann að yrði þetta hjónaband ekki gott ástand og mögulega ekki góð hugmynd. Hann bannaði mer þó þetta ekki og sagði að hún á endanum já. Gifting í næstu viku og kaup á nýju landi. Vona ég samt á sama tíma að Kjartan hafi nælt sér í konungssysturina og er ekkert á leiðinni heim. #ekkikomaheim #fucked @official.kjartan.olafsson #married #newlandwhodis #seeyounextweek @gurdrun.osvifursdottir
Hvetjum alla til að fylgja þessum skemmtilegu persónum á instagram og fylgjast með námi nemenda á óhefðbundin hátt.

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.