11. nóvember 2009

LEGO hönnunarkeppnin 2009

LEGO hönnunarkeppnin 2009

Róbóbóbó lið Salaskóla varð Legó meistari 2009 í Lego hönnunarkeppninnni sem fram fór í íþróttahúsi Keilis á Ásbrú síðastliðinn laugardag. Keppnin í ár var helguð snjöllum samgöngum

Legóhönnunarkeppnin var haldin í fimmta sinn á Íslandi um síðastliðna helgi í íþróttahúsi Keilis á Ásbrú. Lið Akurskóla, Error, hlaut ekki verðlaun að þessu sinni en liðið fékk tilnefningu í flokki fyrir bestu liðsheildina. Lið Myllubakkaskóla, Myllurnar, hlaut 1. verðlaun í flokki skemmtiatriða. Við óskum þeim til hamingju með sigurinn. Auk Akurskóla og Myllubakkaskóla tóku lið frá Njarðvíkurskóla og Heiðarskóla úr Reykjanesbæ, þátt í keppninni. Lego meistarar urðu Róbóbóbó sem kom frá Salaskóla. Segja má að Suðurnesjamenn og Austfirðingar hafi haldið keppninni uppi í ár því níu lið af þeim tíu sem þátt tóku komu frá þessum landshlutum. Keppnin tókst í alla staði mjög vel og voru allir þátttakendur til fyrirmyndar og skemmtu sér en spennan var orðin afar mögnuð þegar úrslitin voru kunngjörð.  

Keppt var í sex flokkum og hlutu eftirfarandi lið 1. verðlaun í hverjum flokki.  Myllurnar frá Myllubakkaskóla fyrir skemmtiatriði, El Grilló frá Seyðisfjarðarskóla fyrir lausn á þrautabraut, Róbóbóbó frá Salaskóla fyrir hönnun og forritun á vélmenni og dagbók,  Need for Speed  frá grunnskóla Fáskrúðsfjarðar fyrir rannsóknarverkefni og Smartís fyrir bestu liðsheildina

Með þátttöku í þessari keppni er ungu fólki boðið að taka þátt í spennandi verkefnum sem skapa færni í vísindum, verkfræði og tækni, örva nýsköpun og byggja upp lífsleiknihæfileika eins og sjálfstraust, samskiptahæfni og forystuhæfileika.

Keppnin í ár var helguð snjöllum samgöngum "smart move"  Þátttakendur þurftu að hanna og forrita vélmenni sem leyst

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla