Legokeppnin
Nemendur í Akurskóla tóku í fjórða skiptið þátt í Legóhönnunarkeppninni sem fram fór í Öskju laugardaginn 8. nóvember. Það voru nemendur úr 6. og 7. bekk sem skipuðu sveit Akurskóla að þessu sinni.
Undirbúningur hefur staðið undanfarnar vikur undir leiðsögn hópstjórans Þormóðs Loga kennara í raunvísindum. Hópurinn stóð sig með stakri prýði þann tíma sem undirbúningur átti sér stað og ekki síst á  keppnisdaginn. Þar mátti sjá mjög góðan liðsanda sem einkenndi liðið. Að mati þeirra sem fylgdust með var dagbók nemenda og rannsóknarverkefnið sérstaklega vel unnið. Í ár þótti þrautin á brautinni erfiðari en undanfarin ár og skoruðu liðin almennt mun færri stig en áður. Lið Akurskóla sem bar heitið Kornin lenti í 12.-13. sæti í þeirri þraut en í ár tóku nítján lið þátt í keppninni.
Markmiðið með keppninni er að vekja áhuga grunnskólanema á tækni og vísindum og ekki síst að gera raungreinar skemmtilegar. Keppt er í tækniþekkingu, liðsheild, leiðtogahæfni, framkomu og sjálfstæðum vinnubrögðum. Í ár tóku um 200 grunnskólabörn á aldrinum 10-16 ára þátt í keppninni og fengu allir þátttakendur verðlaunapening. Sérstök verðlaun voru veitt fyrir bestu lausnina í þrautabraut, bestu hönnun og forritun á vélmenni, besta rannsóknarverkefnið, bestu dagbókina, bestu liðsheildina og besta skemmtiatriðið. Aðalvinninginn FLL meistarar hlaut liðið Klakar sem kom frá Höfn í Hornafirði. Þess má geta að fimm skólar frá Suðurnesjum tóku þátt í keppninni í ár fjórir frá Reykjanesbæ og Stóru-Vogaskóli frá Vogum. Nemendur þessara skóla voru verðugir fulltrúar okkar.
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


