Leiklistarval í leikhúsi
Nemendur úr leiklistarvali Akurskóla brugðu undir sig betri fætinum sl. sunnudag og lögðu leið sína í Borgarleikhúsið til að sjá íslensk-dönsku leiksýninguna "Blam" e. Kristján Ingimarsson og Jesper Pedersen. Nemendur nutu sýningarinnar til hins ýtrasta enda einkennist sýningin af einstökum krafti, látbragðsleik, gamanleik, fimleikum, trúðleik, dansi og leiklist. Við þökkum þeim foreldrum sem tóku að sér að keyra öllum til höfuðborgarinnar.

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


