17. apríl 2008

Leikskólaheimsókn í Akurskóla

Leikskólaheimsókn í Akurskóla

Krakkarnir á leikskólanum Holti heimsóttu Akurskóla í vikunni. Það má með sanni segja að krakkarnir í 1. og 2. bekk hafi tekið vel á móti þeim og fengu þau að spreyta sig á ýmsum verkefnum með dyggri aðstoð kennaranna. Nú hafa öll börnin sem hefja grunnskólagöngu í haust og koma frá leikskólunum Akri og Holti heimsótt okkur.

Þann 9. maí verður tekið á móti börnum úr öðrum leikskólum bæjarins. Þeir foreldrar sem eiga börn sem hefja skólagöngu næsta haust í Akurskóla og koma úr öðrum bæjarfélögum eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við skrifstofu skólans ef þeir vilja heimsækja okkur.    

 

 

 

 

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla