Leikskólaheimsóknir
Þessa vikuna eru leikskólaheimsóknir. Þá koma börn frá leikskólanum Holti og Akri í stutta heimsókn þar sem þau fá kynningu á skólanum. Stjórnandi sýnir þeim skólann og kynnir þeim starfið sem fram fer. Myndin er af hópi frá Holti í heimsókn hjá Magnúsi myndmenntakennara.
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


