17. febrúar 2012

Lið Akurskóla í 2. sæti í Gettu ennþá betur.

Lið Akurskóla í 2. sæti í Gettu ennþá betur.
Spurningarkeppnin „Gettu ennþá betur“ fór fram í Heiðarskóla á miðvikudagskvöldið. Lið Akurskóla lenti í 2.sæti eftir spennandi úrslitakeppni við Heiðarskóla,en þeir sigruðu keppnina í ár. Lið Akurskóla skipuðu þeir Adam Sigurðsson, Þorvaldur Norðfjörð, Alexander Haukson og Teitur Theodórsson. Það sem gerir keppni sem þessa svo skemmtilega er að úrslitin koma oft ekki  í ljós fyrr en á síðustu metrunum, en það var einmitt það sem gerðist hjá liðinu okkar. Þeir náðu frábærum árangri í hraðaspurningum  og vísbendingaspurningunum á meðan bjölluspurningarnar voru þeim erfiðari, þetta snérist oft um sekúndubrot. Það verður því lögð sérstök áhersla á snerpuna hjá okkur fyrir næsta ár.

 

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla