2. febrúar 2012

Lífshlaupið

Lífshlaupið Akurskóli hefur ákveðið að taka þátt í Lífshlaupinu 2012, átaks- og hvatningarverkefni á vegum Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands. Lífshlaupið stendur yfir frá 1. febrúar til 14. febrúar. Megin markmið verkefnisins er að hvetja landsmenn til þess að hreyfa sig og tileinka sér heilbrigða lífshætti. Við ætlum að taka þátt í hvatningarleik fyrir grunnskóla þar sem nemendur okkar keppa við aðra skóla um það hvort þeir nái að hreyfa sig í 60 mínútur daglega eða á meðan átakið stendur yfir. Starfsfólk skólans ætlar einnig að taka þátt í vinnustaðakeppni Lífshlaupsins. Nánari upplýsingar um verkefnið er að finna á vef þess www.lifshlaupid.is einnig er hægt að hafa samband við Jóhönnu á netfangið johanna.ingvarsdottir@akurskoli.is


Við villjum biðja ykkur foreldrar/forráðamenn góðir að hvetja börnin ykkar til þátttöku og taka þátt í því að þau nái þeim 60 mínútum í hreyfingu á dag samkvæmt ráðleggingum frá embætti landlæknis um hreyfingu.
Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla