31. október 2023

Lindin hlaut styrk

Ellefu aðilar, félög og góðgerðarsamtök á Suðurnesjum fengu veglega styrki eftir Góðgerðarfest Blue Car Rental sem haldið var 14. október. Alls söfnuðust rúmar tuttugu milljónir króna frá fyrirtækjum og einstaklingum samhliða Góðgerðarfestinu. Lindin við Akurskóla fékk styrk að upphæð 1.250.000 krónur.

Akurskóli þakkar eigendum Blue Car Rental kærlega fyrir veglegan styrk í þessu spennandi verkefni sem framundan er í Lindinni.

Sigurbjörg Róbertsdóttir tekur við styrknum fyrir hönd Akurskóla frá Þorsteini Þorsteinssyni.

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla