Lindin hlaut styrk frá Blue Car Rental
Lindin hlaut styrk frá Blue Car Rental.
Þrjátíu og níu aðilar, félög og góðgerðarsamtök fengu veglega styrki eftir Góðgerðarfest Blue Car Rental sem haldið var 10. október. Alls söfnuðust rúmar þrjátíu og níu milljónir króna frá fyrirtækjum og einstaklingum samhliða Góðgerðarfestinu. Lindin við Akurskóla fékk styrk að upphæð 1.400.000 krónur.
Akurskóli þakkar eigendum Blue Car Rental kærlega fyrir veglegan styrk sem mun nýtast í frekari uppbyggingu í Lind.
Þorsteinn Ingi Hrafnsson nemandi í 7.bekk í Akurskóla og nemendi í Lind tók við styrknum fyrir hönd Akurskóla frá þeim Magnúsi Þorsteinssyni, Guðrúnu Sædal og Þorsteini Þorsteinssyni.

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


