2. október 2023

List fyrir alla

List fyrir alla

List fyrir alla

Í morgun var boðið uppá leiksýningu fyrir nemendur í 1. -3. bekk á vegum verkefnisins List fyrir alla. Listamennirnir Valgerður Guðnadóttir, Sigurður Helgi Oddsson og Matthías Stefánsson fluttu leikritið Ævintýrið um Ferðafljóð við góðar undirtektir. Saga og handrit er eftir Valgerði Guðnadóttur.

Ævintýrið um Ferðafljóð

Lítil stúlka vaknar upp í torfbænum sínum við undarlegt hljóð. Henni opnast leið inn í ævintýraheim og fer í háskalegt ferðalag á baki Fugls. Hún þarf að bjarga fólki í neyð vítt og breytt um heiminn. Hún kemst að því að hún hefur ofurkrafta sem er röddin hennar og leysir þrautir með röddina að vopni.  Alls kyns furðuverur koma við sögu svo sem illir álfkarlar, fenjadísir og fleiri fyrirbæri.
Tónlistin er blanda af þjóðlögum og þekktum sönglögum frá ýmsum löndum. Áhorfendur fara í spennandi ævintýraleiðangur með Ferðafljóði og Fugli og kynnast í leiðinni allskyns skemmtilegri tónlist.

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla