11. maí 2012

Listahátíð barna

Listahátíð barna Listahátíð barna er samstarfsverkefni Listasafns Reykjanesbæjar og allra 10 leikskóla bæjarins og allra 6 grunnskólanna. Markmið hátíðarinnar er m.a. að safna saman á nokkra staði verkum sem sýna sköpunargleði barna í Reykjanesbæ svo íbúar bæjarins fái tækifæri til að sjá sköpunarmáttinn sem býr í börnunum okkar. Í grunnskólunum er unnið undir yfirskriftinni “Listaverk í leiðinni” en hún felur í sér fjölbreytta staðsetningu á verkunum.  Listaverkin eru líka af öllu tagi og þar má sjá gott yfirlit yfir vinnu vetrarins , margvísleg vinnubrögð og óþrjótandi sköpunargleði barnanna í bænum. Akurskóli er með sýningu á Kaffitár og í Nettó.

 

Leikskólabörnin vinna margs konar myndlistarverk og önnur verkefni undir ákveðinni yfirskrift og er afraksturinn sýndur í Duushúsum að vori þá daga sem Listahátíðin stendur yfir. Á sama tíma koma leikskólarnir í skipulagðar heimsóknir í safnið, skoða sýninguna og standa fyrir skemmtidagskrá.

 

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla