Litahlaup í Akurskóla
Í dag var gleði í Akurskóla þegar nemendur tóku þátt í skemmtilegu litahlaupi í frábæru veðri.
Litahlaupið er viðburður þar sem áhersla var lögð á hreyfingu, samveru og gleði fremur en keppni. Á hlaupaleiðinni fengu þátttakendur að upplifa litadýrðina þegar litríkum dufti var kastað yfir þá. Þá mætti Slökkviliðið og úðaði vatni yfir nemendur og þökkum við þeim fyrir aðstoðina.
Litaduftið sem notað var er eingöngu unnið úr náttúrulegum efnum, maísenamjöli og matarlitum. Þrátt fyrir að litirnir geti verið sýnilegir á gangstéttum og nánasta umhverfi fyrst eftir hlaupið er það tímabundið – litirnir skolast fljótt burt með rigningu án þess að skilja eftir sig skaðleg áhrif á náttúruna eða yfirborð.
Viðburðurinn þótti afar vel heppnaður og var ljóst að hann vakti mikla ánægju hjá bæði nemendum og starfsfólki.
Fleiri myndir væntanlegar í myndasafn skólans.

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


