6. maí 2026

Litla upplestrarkeppnin

Litla upplestrarkeppnin

Litla upplestrarkeppnin eða upplestrarhátíðin var haldin í 4. bekk miðvikudaginn 6. maí.   Litla upplestrarkeppnin er fyrir 4. bekk grunnskóla og er ætlað að bæta árangur í lestri, munnlegri tjáningu og framkomu. Má segja að þetta sé upphitun fyrir Stóru upplestrarkeppnina sem haldin er í 7. bekk.

Undanfarnar vikur hafa nemendur æft sig af kappi og var afraksturinn frábær og stóðu nemendur sig vel.

Nemendum úr 3. bekk var boðið sem áhorfendum en á næsta ári munu þeir taka þátt í hátíðinni. Einnig var foreldrum nemenda 4. bekkjar boðið að hlíða á upplesturinn.

Einnig stigu á svið tveir nemendur úr 4. bekk og léku á hljóðfæri en það voru Emma Calderon Idarraga lék á píanó og Mikael Reynir Kárason sló á trommur. Þá lásu Íris Freyja Atladóttir og Heiðdís Klara Hjartardóttir upp ljóð en þær kepptu fyrir hönd Akurskóla í Stóru upplestrarkeppninni í vor og stóðu sig með miklu prýði.

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla