12. apríl 2011

Litla upplestrarkeppnin í 4.-5. bekk.

Litla upplestrarkeppnin í 4.-5. bekk. Í síðustu viku var Litla upplestrarkeppnin haldin í 4. og 5. bekk. Fyrirmynd að keppninni er Stóra upplestrarkeppnin sem haldin er á landsvísu fyrir nemendur í  7. bekk ár hvert. Forkeppni var haldin í Litlu upplestrarkeppninni í hverjum bekk og fjórir fulltrúar valdir til þátttöku í lokakeppninni sem haldin var á sal Akurskóla 6. apríl sl.  Í dómnefnd sátu Jónína Ágústsdóttir, Dröfn Rafnsdóttir og Herborg Þuríðardóttir. Nemendurnir tólf sem lásu upp ljóð í lokakeppninni stóðu sig mjög vel og veittist það dómnefndinni afar erfitt að velja einn sigurvegara. Að vel vel ígrunduðu máli varð niðurstaðan sú að Karen Mist Arngeirsdóttir hlaut verðlaun fyrir frammistöðu sína. Verðlaunin er farandgripur sem hannaður var af Jönu Guðmundsdóttur smíðakennara eftir hugmynd Sveins Ólafs Magnússonar kennara. Verðlaunagripurinn sýnir opna bók og verður nafn vinningshafa greypt á blaðsíður hennar í framtíðinni.
Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla