Litla upplestrarkeppnin í 4. bekk

Í dag héldu nemendur 4. bekkjar ásamt kennurum sínum Ólínu, Ester og Alexöndru glæsilega upplestrarhátíð. Í Litlu upplestrarkeppninni er lögð áhersla á að ná betri árangri í lestri, munnlegri tjáningu og framkomu. Nemendur flytja texta og ljóð sem þeir hafa æft í vetur bæði í skólanum og heima. Litla upplestrarkeppnin er undanfari Stóru upplestrarkeppninnar í 7. bekk. Einnig voru tónlistaratriði frá þremur nemendum í árganginum en það voru Gunnar Þór, Lúkas Liew og Emelía Rós sem stigu á stokk. Nemendum úr 3. bekk var boðið á keppnina og einnig foreldrum. Nemendur stóðu sig afar vel og voru til mikilla sóma.

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.