Litlu jólin
Litlu jólin verða haldin í Akurskóla föstudaginn 18. desember. Á litlu jólunum horfum við á helgileik og dönsum í kringum jólatré á sal skólans. Einnig verður samvera í kennslurýmum en umsjónarkennarar veita nánari upplýsingar um fyrirkomulag samverustunda. Nemendur mæta sem hér segir á litlu jólin:
1.-3. bekkur mætir kl. 8:10-11:00
4.-7. bekkur mætir kl. 11:00-13:00
8.-10. bekkur mætir kl 11:00-13:00
Jólafrí nemenda hefst eftir litlu jólin þann 18. desember en síðasti opnunardagur fyrir jól í frístundaskólanum er föstudagurinn 18. desember. Skólinn hefst að loknu jólafríi skv. stundatöflu þriðjudaginn 5. janúar.
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


