Litlu jólin

Föstudaginn nk. þann 18. desember verða litlu jólin í skólanum. Nemendur mæta í sína heimastofu á þeim tíma sem umsjónarkennari hefur gefið þeim og hefjast litlu jólin kl. 9:00. Í ár ætla allir nemendur og starfsmenn að vera saman í íþróttahúsinu að loknu stofujólum. 5. bekkur verður með Helgileik, kórinn syngur 2 lög, 7. bekkur verður með dansatriði og leiklistarvalið verður með leikrit. Að lokum verður dansað í kringum jólatréð. Gert er ráð fyrir að skemmtuninni ljúki um kl 11:00

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.