7. september 2026

Ljósanæturhátíð og treyjudagur í Akurskóla

Ljósanæturhátíð og treyjudagur í Akurskóla

Formleg setning Ljósanætur fór fram í Skrúðgarðinum á fimmtudaginn þar sem Ljósanæturfáninn var dreginn að húni og Páll Óskar og Deisí skemmtu viðstöddum. Nemendur í 3., 7. og 10. bekk sóttu hátíðina og voru skólanum til mikils sóma. Þeir sýndu góða framkomu og tóku virkan þátt í hátíðarhöldunum.

Á föstudaginn hófst dagurinn á skemmtilegri söngstund þar sem Ljósanæturlagið var sungið af krafti ásamt öðrum hressum lögum. Einnig var treyjudagurinn í dag þar sem við stöndum öll saman fyrir börn með krabbamein. Nemendur og starfsfólk tóku virkan þátt í deginum og gaman að sjá margar mismunandi íþróttatreyjur.  

Eftir hádegi bauð nemendafélagið upp á fjölbreyttar og skemmtilegar stöðvar fyrir nemendur. Þar mátti meðal annars finna andlitsmálningu, danspartý, fótbolta, körfubolta, krítarteikningu og þrautabraut í íþróttahúsinu. Andlitsmálningin vakti að venju mikla lukku og var án efa vinsælasta stöðin. Elstu börnin af leikskólunum Akri og Holti var boðið að taka þátt í hátíðinni.

Dagurinn heppnaðist einstaklega vel og gaman var að sjá gleði, samveru og þátttöku nemenda á öllum stöðvum.

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla