Loksins, loksins, loksins

Eftir meira en ár í takmörkunum á skólastarfi færumst við nú nær eðlilegu ástandi.
Með nýjustu tilslökunum heilbrigðisráðherra, sem gilda frá þriðjudeginum 25. maí, falla úr gildi sérstakar takmarkanir um skólastarf sem í gildi hafa verið með undanfarna mánuði. Sömu reglur munu því gilda um skólastarf og almennt í samfélaginu en verulega er dregið úr samkomutakmörkunum í nýrri reglugerð.
Meðal þeirra breytinga á sóttvarnaráðstöfunum sem helst snerta skólastarf í leik- og grunnskólum eru:
- Hámarksfjöldi í hverju sóttvarnarrými verður 150
- Hægt verður að halda viðburði með sitjandi gestum fyrir allt að 300 manns. Grímuskylda er á sitjandi viðburðum
- Nálægðartakmörkun í skólastarfi er a.m.k. 1 metri
- Þar sem ekki er hægt að halda lágmarksfjarlægð milli einstaklinga sem ekki er í nánum tengslum skal áfram nota grímur
- Foreldrum og aðstandendum verður heimilt að koma inn í skólabyggingar, en gæta skal að sóttvarnaráðstöfunum.
Við hvetjum alla til þess að gæta að persónulegum smitvörnum, minnum á mikilvægi handþvottar og notkun spritts. Við erum í þessu saman.

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.