20. október 2011

Lúðrasveit frá Færeyjum

Lúðrasveit frá Færeyjum

Lúðrasveit frá tónlistarskólanum á eyjunni Vågar í Færeyjum hélt tónleika fyrir nemendur Akurskóla í dag. Hljómsveitarmeðlimir sem eru á aldrinum 11 – 15 ára koma frá fjórum bæjum eyjarinnar það er frá Sörvågur, Miðvågur, Vatnsoyrar og Sandarvågur. Innan færeysku lúðrasveitarinnar er einnig sjö manna popphljómsveit sem spilaði nokkur lög.


Nemendur Akurskóla voru mjög ánægðir með tónleikana og mega gjarnan bjóða fjölskyldum sínum á tónleika með hljómsveitinni sem verða í Stapa í kvöld kl. 17:30.


Hljómsveitin mun þá spila með Lúðrasveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar C-sveit. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Stjórnandi hljómsveitarinnar er Joan Hofgaard. Við þökkum Færeyingunum innilega fyrir ánægjulega stund og einnig forsvarsmönnum Tónlistarskóla Reykjanesbæjar en hljómsveitin er stödd í Reykjanesbæ í boði þeirra.

 

Sjá myndir í myndasafni

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla