Má ég vera memm?
Við í Akurskóla fengum í dag frábæra heimsókn í skólann.
Harpa Lúthersdóttir, rithöfundur, kom og afhenti skólanum 30 eintök af bókinni sinni, Má ég vera memm?
Bókin fjallar um Fjólu sem er að byrja í grunnskóla. Hún er mjög spennt fyrir því að byrja en svo gengur henni afar illa að eignast vini. Bókin fjallar um einelti og er ætluð börnum í 1. – 4. bekk.
Þessi gjöf er gott innlegg í eineltisumræðuna og færum við Hörpu kærar þakkir fyrir.
Vekjum athygli á því að Harpa vill koma bókinni inn í grunnskóla og hægt er að styrkja verkefnið hennar á þessari síðu: https://www.karolinafund.com/project/view/1034
eða fylgjast með verkefninu á facebook:
https://www.facebook.com/groups/38604587939/

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.