5. nóvember 2015

Margt að gerast í Akurskóla

Það er mikið um að vera í Akurskóla þessa daga. Nemendur ásamt kennurum sínum hafa verið að klára setja ýmislegt í tímahylkin, sem verða opnuð eftir 40 ár. Þetta er gert að tilefni 10 ára afmæli skólans sem er á mánudaginn nk., þann 9. nóvember. Sjá dagskrá á www.akurskoli.is
 
Í fyrradag kom Helgi Jónas Guðfinnsson kom með fyrirlestur fyrir nemendur í 8. - 10. bekk sem bar yfirskriftina hugarfarsbreyting. 
 
Í gær kom Hafþór Birgisson, tómstunda- og félagsmálafræðingur og var með fyrirlestur um jákvæða og örugga netnotkun fyrir nemendur í 4.-7. bekk
 
Í dag kom Þorgrímur Þráinsson með fyrirlestur handa 10. bekk og sem bar yfirskriftina verum ástfangin af lífinu. 
 
Við minnum á starfsdaginn sem er á morgun, föstudaginn 6. nóvember. Þá fellur niður öll kennsla og frístundarskólinn Akurskjól er einnig lokaður. 
 
 
Eigið góða helgi :)
 
 
Tímahylkin
 
 
Þorgrímur Þráinsson
 
Hafþór Barði Birgisson
 
Helgi Jónas Guðfinnsson
Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla