7. nóvember 2008

Morgunkaffi með stjórnendum

Morgunkaffi með stjórnendum

Skólinn er stór þáttur í lífi hvers barns og því er mikilvægt að samstarf milli heimilis og skóla sé gott. Rannsóknir benda til þess að þegar foreldrar taka þátt í skólastarfi sé frammistaða barna þeirra betri og sjálfstraust meira. Allt samstarf þarf að byggja á gagnkvæmri virðingu, trausti og með hag barnsins í huga.

Með þetta í huga viljum við bjóða ykkur í morgunkaffi með stjórnendum skólans þar sem farið er stuttlega yfir aðaláherslur okkar í Akurskóla. Á eftir gefst tækifæri til að ræða ýmis mál, skoða skólabygginguna og sjá nemendur og kennara að störfum.

Hér má sjá hvenær á að mæta:

Dags

Bekkir

Tími

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla