18. nóvember 2008

Morgunkaffi með stjórnendum

Morgunkaffi með stjórnendum

Miðvikudaginn 19. nóvember kl. 8.10 - 8.50 er foreldrum nemenda í 8.-9. bekkjum boðið í morgunkaffi með stjórnendum Akurskóla. Á dagskrá verður stutt kynning á stefnu skólans og á eftir gefst tækifæri til að ræða málin, skoða skólann og sjá nemendur og kennara að störfum.

Fimmtudaginn 20. nóvember er komið að foreldrum nemenda í 6.-7. bekkjum að mæta í morgunkaffi með stjórnendum og er það einnig kl. 8.10 - 8.50. Í síðustu viku voru þrír morgunfundir með stjórnendum sem haldnir voru með sama sniði. Mæting var góð og sköpuðust skemmtilegar umræður.

 

Kveðja, Jónína, Lars og Helga.

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla