Morgunkaffi með stjórnendum
Nú hefur öllum foreldrum verið boðið til morgunfundar með stjórnendum. Í heildina voru fundirnir vel sóttir af foreldrum. Stjórnendur fóru yfir stefnu og sýn Akurskóla en að því loknu voru almennar umræður sem okkur þótti mjög gagnlegar. Foreldrar komu með ýmsar ábendingar um hvað mætti betur fara í skólastarfinu. Að fundi loknum var farið inn í kennslurými viðkomandi hóps og aðstæður nemenda skoðaðar en einnig fengu foreldrar að skoða nýju álmuna sem verið er að leggja lokahönd á. Stjórnendur skólans stefna að því að bjóða nemendum upp á samskonar fundi.





Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


