9. febrúar 2009

Myndir á sýningu

Myndir á sýningu

Nemendur í 2.-3. bekk hafa í tónmenntasmiðjunni verið að hlusta á brot úr verkinu Myndir á sýningu eftir Modest Mussorgsky, en verkið samdi Mussorgsky innblásinn af verkum arkítektsins og listamannsins Viktor Hartmann, en þeir voru góðir vinir. Þegar Viktor Hartmann lést var það mikið áfall fyrir Mussorgsky og hann átti þátt í að sett var upp mikil yfirlitssýning á verkum hans. Sýningin hafði slík áhrif á Mussorgsky að hann settist við skriftir og verkið Myndir á sýningu varð til á sex vikum. Í því lýsir Mussorgsky nokkrum af myndum Hartmanns inn á milli lítilla kafla sem tákna ferð safngests um sýninguna.

Nemendur í 2.-3. bekk hafa undanfarið hlustað á tvo kafla úr verkinu, "Kofinn á fuglsfótunum" (en þar býr nornin Baba Jaga, samkvæmt Austur-Evrópskum þjóðsögum) og "Borgarhliðin í Kænugarði" (Viktor Hartmann sendi tillögu í verðlaunasamkeppni um teikningu að nýjum borgarhliðum Kænugarðs í Úkraínu. Hann áleit teikninguna sitt besta verk og þrátt fyrir að hann hafi unnið keppnina voru hliðin aldrei byggð). Við höfum unnið með tónlistina á ýmsan máta og meðal annars teiknuðu nemendur myndir til að tjá hugmyndir sínar um tónlistina á sjónrænan hátt. Þær myndir eru nú sjáanlegar á ganginum við tónmenntastofuna.

Þannig hefur tónverk, innblásið af listsýningu orðið að annarri listsýningu.

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla