Myndir frá árshátíð komnar inn
Þema árshátíðarinnar í ár var þjóðsögur og ævintýri. Nemendur í Húnum, Kettlingum og Hvolpum léku og sungu lög úr Dýrunum í Hálsaskógi. Nemendur í 3. og 4. bekkur sömdu leikþátt úr ævintýrinu Narníu.
Nemendur í 5. og 6. bekk  blönduðu saman á skemmtilegan hátt söguþráðum og persónum úr ævintýrunum Hans og Grétu, Rauðhettu, Mjallhvít, Gosa, Shrek, grísunum þremur, Ástrík o.fl.  Nemendur í 7. og 8. bekk fluttu leikþátt með nútímasniði úr þjóðsögunni Velvakandi og bræður hans.
Veitingar voru í boði nemenda og foreldra og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir.
Myndir frá árshátíðinni eru komnar inn - þær má nálgast HÉR
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


