Námsmaraþon hjá 7. bekk
Föstudaginn 18. janúar héldu 7. bekkingar í Akurskóla námsmaraþon sem fjáröflun fyrir Reykjaferð þeirra í febrúar. Söfnunin gekk mjög vel enda var tekið vel á móti þeim í hverfinu. Maraþonið var frá 8:10 um morgun til miðnættis og var mjög fjölbreytt dagskrá sem var skipulögð af kennurum þeirra í samstarfi við foreldra. Mikið var lagt upp úr hópefli til að hrista hópinn vel saman fyrir ferðina og var farið í boðsundskeppni, enda ekki hvaða bekkur sem er sem getur státað af því að hafa Ólympíufara til að keppa við. Leiklistaræfingar slógu í gegn og svo var tekið vel á því í Crossfit. Í lok kvöldsins fóru heim þreyttir en mjög ánægðir nemendur sem bíða spenntir eftir ferðinni sinni.
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


