Narfakotsseyla
Kæru foreldrar.
Af einhverjum ástæðum tókst ekki fá fólk til vinnu síðasta laugardag
þannig að vinnudagurinn féll niður þá. Við gerum því lokatilraun með að
reka lokahnykkinn á það sem óklárað er í þessum áfanga næsta
laugardagsmorgun kl.10. Það sem eftir að gera er að steypa niður 8
rekaviðardrumba sem verða notaðir í þrautabraut. Búið er að grafa
holurnar og bera drumbana að þeim. Það þarf að hræra saman sementi og
vatni og aka í hjólbörum að holunum sem steypt er í. Það fara 4-5
hjólbörur í hverja holu. Svo þurfum við að ganga frá fyrir veturinn.
Þetta á ekki að þurfa að taka langan tíma og ætti verkinu að vera lokið
upp úr kl. eitt. Guðmundur Hrafn landslagsarkitekt verður með okkur á
staðnum og stýrir hann verkinu. Boðið verður upp á kaffi og svala. Látið
vita á akursoli@akurskoli.is fyrir hádegi á föstudag ef þið sjáið ykkur
fært að mæta.
kær kveðja,
f.h. stýrihópsins
Magnús Valur Pálsson
s. 696 4581
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


