31. október 2012

Narfakotsseyla

Narfakotsseyla Það eru spennandi dagar framundan í Akurskóla og leikskólunum Akri og Holt. Vikuna 5. – 9. nóvember hefjumst við handa við að gera þrautabraut í Narfakotsseylu. Narfakotsseyla er sameiginlegt útikennslusvæði þessara þriggja skóla. Uppbygging svæðisins hefur staðið yfir í langan tíma en nú er þar að finna skýli, vísi að eldstæði, bryggju, brú og bekki. Og ekki má gleyma staurunum sem bera hvítu seglin okkar.


Ætlunin er að í þessari vinnulotu ljúki gerð þrautabrautar og útbúið verði varanlegt eldstæði.



Við minnum nemendur á að koma klædd eftir veðri alla vikuna því allir hópar fara og aðstoða við gerð brautarinnar.

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla