Nemendur gerast kennarar
Nú er vor í lofti og nemendur, jafnt sem starfsfólk, eru ólmir í að komast út og njóta góða veðursins. Við ákváðum að hanna  útikennsluverkefni fyrir okkar frábæru nemendur.
 
Þemavikan Náttúruperlur í Innri-Njarðvík er nýlokin þar sem nemendur Akurskóla kynntu sér sitt nánasta umhverfi og unnu út frá því.  Þess vegna  ákváðum við að nýta okkur þekkingu nemenda á umhverfinu og stýra þeim í að láta verkefnin ekki aðeins fara fram utandyra heldur líka fara fram í perlum hverfisins.
Nemendur voru settir saman í 2-4 manna hópa. Verkefni hvers hóps er að búa til verkefni sem aðrir nemendur eiga síðan að framkvæma.
Verkefnin snúa ekki aðeins að umhverfinu heldur eiga nemendur einnig að samþætta íslensku og stærðfræði. Í næstu viku munu hóparnir fá afhent verkefnin og leysa þau. Við vonumst því til þess að sólin skíni á okkur svo regngallinn þurfi ekki að vera tekinn fram.
Kærleikskveðjur Dísa, Freyr og Sólveig Silfá
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


