Nemendur í 2. og 3. bekkjum skreyta jólatré
Nemendur í  Kópum, Kiðlingum og Kálfum tóku þátt í að skreyta jólatré á Hafnargötunni.
Skrautið var unnið úr endurunnu gleri en það var Karólína myndmenntarkennari sem aðstoðaði umsjónarkennara og nemendur við gerð þess. Þetta verkefni er unnið í samstarfi við Umhverfissvið Reykjanesbæjar sem bauð nemendum upp á heitt kakó og piparkökur í Skessuhellinum þegar búið var að skreyta öll jólatrén. Þess má geta að tréð okkar er fyrir framan Fasteignasöluna Ásberg.
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


