Nemendur og foreldrar í Akurskóla, förum út að ganga í vorblíðunni!
Síðastliðið haust hittust nemendur og foreldrar þrjá laugardaga og gengu um Reykjanesið og nokkrir skelltu sér í réttir. Þetta voru skemmtilegar ferðir og nutu bæði börn og hinir fullorðnu fallegs umhverfis, hreyfingar og samveru. Nú ætlum við að endurtaka leikinn og vonumst við til þess að sjá sem flesta. Nú þegar liggur skipulögð dagskrá fyrir og hafa börnin fengið það í töskupósti.
 
Fyrsta ferðin af þremur í þessari lotu verður laugardaginn 3. maí ætlunin er að ganga uppá Þorbjörn sem kemur ávallt skemmtilega á óvart! Lagt verður af stað frá Akurskóla á bílum stundvísilega kl. 11:00. Hafið nesti meðferðis!
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


