Nemendur og starfsmenn hylltu Karólínu!
Nemendur og starfsmenn Akurskóla komu saman á sal í gær og óskuðu Karólínu myndmenntakennara  til hamingju með Íslensku menntaverðlaunin og færðu henni bók að gjöf af því tilefni.
Karólína er í námsleyfi í vetur en við höfum samt fengið að njóta krafta hennar við uppbyggingu útikennslusvæðisins við Narfakotsseylu. 
Í ávarpi til Karólínu sagði Jónína skólastjóri að við værum öll þakklát og stolt af að hafa fengið að starfa með henni og notið krafta hennar í þágu skólans. Hún sagði ennfremur að þessi verðlaun væru mikilvæg fyrir kennarastéttina sem allt of oft fengi að heyra hvað betur mætti fara frekar en hrós fyrir vel unnin störf. Í ávarpi sínu þakkaði Jónína forseta vorum, Ólafi Ragnari Grímssyni, fyrir að vekja athygli á því sem vel væri gert og að skapa þannig jákvæða umræðu um skólastarf í landinu. Í þakkarorðum sínum benti Karólína á að við ættum stóran þátt í að skapa það umhverfi sem við hrærðumst í. Það skipti öllu máli að við værum stöðugt að leitast við að gera betur, sæjum tækifræri en ekki hindranir og verkefni en ekki vandamál. Að lokum þakkaði Karólína því góða fólki sem hefði haft áhrif á hana, kennurum á Menntavísindasviði Háskóla Íslands, samstarfsfólki og nemendum í Akurskóla og á leikskólunum Holti og Akri í Reykjanesbæ.
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


