Netnotkun

Foreldrum í Akurskóla er boðið á fyrirlestur um jákvæða og örugga netnotkun, í Akurskóla miðvikudaginn 4. nóvember kl 19.30
Á fyrirlestrinum verður meðal annars farið yfir notkun á facebook, askfm, Snapchat og hvaða tölvuleiki er óhætt að leyfa börnum að spila, netvarnir og margt fleira. Auk þessa verður farið yfir hvað sé í lagi að setja á netið og hvað ekki og dæmi tekin úr íslenskum og erlendum veruleika.
Fyrirlesari er Hafþór Birgisson, Tómstunda- og félagsmálafræðingur en hann hefur haldið fjölda fyrirlestra um málefnið frá árinu 2004.
Fyrr um daginn fá nemendur í Akurskóla í 4. - 7. bekk, sem margir hverir eru að stíga sín fyrstu skref á netinu, fræðslu. Foreldrar barna í þessum árgöngum eru sérstaklega hvattir til að koma á fyrirlesturinn.
Að loknum fyrirlestrinum er tilvalið fyrir foreldra að eiga samtal við börnin sín um netöryggi og hvað er óhætt að gera á internetinu og hvað er ekki óhætt að gera.
Misstu ekki af þessu tækifæri og kynntu þér þessi þörfu mál sem varða okkur öll.
Fyrirlesturinn tekur u.þ.b. eina klst.
Kær kveðja
Stjórn Foreldrafélags Akurskóla

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.