Niðurstöður úr Skólapúlsinum
Akurskóli hefur nú fengið niðurstöður úr tveimur mælingum í Skólapúlsinum. Nemendur hafa komið í október og desember í tölvuverið og svarað könnuninni.
Niðurstaða hvers þáttar er annað hvort meðaltal mæligilda á bilinu 0 til 10 eða hlutfall svarenda sem velja tiltekna svarmöguleika.
Niðurstaða skólans á hverjum matsþætti er borin saman við samanlagða útkomu allra skóla sem taka þátt. Útkoma allra skóla sem taka þátt (dálkurinn Landið) er vigtuð í samræmi við stærð skóla (tölur frá Hagstofu) og endurspeglar sú tala því stöðuna á landinu í heild.
Bláar tölur merkja að svör þátttakenda í rannsókninni hafi verið tölfræðilega marktækt frábrugðin svörum viðmiðunarhópsins og að líkur megi leiða að því að munurinn sem kemur fram í úrtakinu sé einnig til staðar í þýðinu.
Hátt gildi á kvarða sýnir að viðkomandi þáttur er sterkt einkenni nemenda í skólanum. Sem viðmiðunarregla er munur uppá 0,5 stig ekki mikill munur, munur uppá 1,0 stig telst töluverður munur og munur uppá 1,5 stig og meira telst mikill munur. Túlkun á mikilvægi munarins fer eftir efni og dreifingu hvers matsþáttar fyrir sig.
Helstu niðurstöður fyrir Akurskóla eins og staðan er í dag eru eftirfarandi:




Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.