Norræna skólahlaupið
Í dag fimmtudaginn 29. september tóku allir nemendur í Akurskóla þátt í hinu árlega skólahlaupi sem ber heitið Norræna skólahlaupið sem fer fram í öllum Norðurlöndunum um þessar mundir. Með Norræna skólahlaupinu er leitast við að hvetja nemendur skólanna til þess að æfa hlaup og aðrar íþróttir reglulega og stuðla þannig að betri heilsu og vellíðan. Þátttakendur geta valið hve langt þeir hlaupa þ.e. 2.5 km, 5 km eða 10 km. Að hlaupinu loknu fær hver þátttakandi og einnig hver skóli viðurkenningarskjal þar sem greint er frá árangri og heildarúrslit verða birt í fjölmiðlum og send skólum landsins.
Hér í Akurskóla var mjög góð þátttaka og af 396 skráðum nemendum í skólanum tóku 363 þátt og er það þátttaka upp á 91,7% hvorki meira né minna. Nemendur hlupu í heildina 1852,5 km.
Frábær árangur hjá nemendum sem höfðu mikinn áhuga og mörg hver voru svekkt að fá ekki að fara einn hring í viðbót þegar kennarar sögðu stopp.
sjá myndir í myndasafni
Kv. Freyr Brynjarsson
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


