Norræna skólahlaupið
Í dag, þriðjudaginn 2. október tóku allir nemendur í Akurskóla þátt í hinu árlega skólahlaupi sem ber heitið Norræna skólahlaupið sem fer fram í öllum Norðurlöndunum um þessar mundir. Með Norræna skólahlaupinu er leitast við að hvetja nemendur skólanna til þess að æfa hlaup og aðrar íþróttir reglulega og stuðla þannig að betri heilsu og vellíðan. Þátttakendur geta valið hve langt þeir hlaupa þ.e. 2.5 km, 5 km, 7,5 km eða 10 km. Að hlaupinu loknu fær hver þátttakandi og hver skóli viðurkenningarskjal þar sem greint er frá árangri og heildarúrslit verða birt í fjölmiðlum og send skólum landsins. Hægt er að skoða myndir á myndasíðu.
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


