Norræna skólahlaupið 2010
Norræna skólahlaupið var haldið hér í Akurskóla annað árið í röð en þetta hlaup hefur verið haldið hér á Íslandi síðustu 26 árin. Góð þátttaka var hjá okkar nemendum og hlupu yfir 90% nemenda. Allir fóru einn hring sem er 2,5 km en þó nokkuð margir hlupu 2 til 3 hringi og svo voru nokkrir sem fóru heila 4 hringi sem eru 10 km.
Nokkrir kennarar og starfsmenn hlupu með nemendum en það voru skólastjórinn Jónína, sundkennarinn Jóhanna og bókasafnsvörðurinn Anna Steinunn. Nemendur sem tóku þátt fá viðurkenningaskjal frá Íþrótta og Ólympíusambandi Íslands ásamt því að skólinn fær viðurkenningarskjal þar sem greint verður frá árangrinum.
Af 368 nemendum Akurskóla hlupu 334 í þessu hlaupi. Spóar (8-9.bekkur) urðu í 1.sæti, Ernir (10. bekkur) og Hnísur ( 4.-5. bekkur) í 2.-3.sæti. Nemendur hlupu samtals 1312 km og starfsmenn hlupu samtals 20 km með nemendum.
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


