Nú er komið að útivistinni okkar aftur!
„Akurskóli á iði“ er hópur foreldra, kennara og starfsmanna Akurskóla sem áhuga hafa á léttri útivist og samveru fjölskyldunnar.
Síðasta vor var alveg frábært, en þá var gengið að Grænavatni og á Grænudyngju. Einnig skruppum við í útivist og grill í Stóru-Sandvík. Síðasta ganga vorsins var á Keili sem heppnaðist vel – punkturinn yfir i-ið var þegar jarðskjálfti reið yfir og jörðin hristist undir okkur þar sem við sátum í nesti við rætur Keilis J
Nokkrar samverustundir hafa þegar verið ákveðnar og hvetjum við fjölskyldurnar til að taka þátt. Það er ágætis aukaverkun við svona samveru að við foreldrarnir kynnumst og náum að styrkja enn frekar samvinnu heimilis og skóla.
Næstu útivistardagar eru eftirfarandi:
12. september - Selatangar, sunnanverðu Reykjanesi. Ábyrgðamaður er Anna Sofia Wahlström
26 október – Hópsnes, sunnan af Grindavík. Ábyrgðamaður er Helga Eiríksdóttir
3. október – Hellaskoðun, út af Grindavík
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


