7. október 2021

Nýtt listaverk - Thorkelli-stofa

Nýtt listaverk - Thorkelli-stofa

Í mars 2004 þegar fræðsluráð Reykjanesbæjar ákvað að nafn nýs grunnskóla í Innri-Njarðvík skildi vera Akurskóli var ákveðið á sama tíma að upplýsinga- og bókasafn skólans skildi heita Thorkelli-stofa. Nafnið er til heiðurs Jóni Þorkelssyni Thorchillius Skálholtsrektor sem er fæddur í Innri-Njarðvík og bókagjöf hans til barna í Njarðvíkursókn á sínum tíma.

Á síðasta skólaári unnu nemendur í 7. bekk listaverk til að gera nafni upplýsinga- og bókasafnsins hærra undir höfði. Listaverkinu hefur nú verið komið fyrir og prýðir vegg skólans þegar gengið er upp stigann. Verkið var unnið undir handleiðslu Helgu Láru Haraldsdóttur myndlistarkennara.

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla