25. ágúst 2026

Nýtt samskipta- og upplýsingakerfi tekið í notkun í Akurskóla

Nýtt samskipta- og upplýsingakerfi tekið í notkun í Akurskóla

Á þessu skólaári hefst notkun á Námfús í Akurskóla. Námfús verður sameiginlegur vettvangur fyrir upplýsingar og samskipti milli heimila og skóla og mun smám saman taka við því hlutverki sem InfoMentor hefur gegnt undanfarin ár.

Innleiðing nýs kerfis er umfangsmikið verkefni og gera má ráð fyrir að fyrstu vikurnar og mánuðirnir fari að hluta til í að aðlaga vinnulag, prófa virkni og þróa notkun kerfisins. Ekki verður því allt efni eða allar upplýsingar komnar inn í kerfið strax við upphaf skólaárs og sumir þættir munu byggjast upp í áföngum.

Aðgangur fyrir forráðamenn

Þriðjudaginn 25. ágúst verða sendar út upplýsingar um innskráningu til forráðamanna. Mikilvægt er að fylgjast vel með tölvupósti næstu daga.

Athugið að þar sem um fjöldasendingu er að ræða getur pósturinn í einhverjum tilfellum lent í ruslpósti eða öðrum síum tölvupóstsforrita. Við hvetjum því forráðamenn til að kanna þær möppur ef pósturinn berst ekki í aðalpósthólfið.

Hlutverk Námfús

Markmið Námfúsar er að safna saman helstu upplýsingum um skólastarfið á einn stað og auðvelda aðgengi að þeim fyrir bæði nemendur og forráðamenn.

Í kerfinu verður meðal annars hægt að nálgast:

  • stundatöflur
  • upplýsingar um mætingu
  • verkefni, kennsluáætlanir og námsmat
  • dagatal og viðburði
  • skilaboð frá skólanum
  • ýmsar upplýsingar sem tengjast daglegu skólastarfi

Á meðan innleiðing stendur yfir gætu upplýsingar og virkni verið mismunandi eftir árgöngum og námsgreinum. Upplýsingar um námsframvindu og námsmat munu einnig þróast áfram eftir því sem kennarar kynnast kerfinu betur og notkun þess festist í sessi.

Aðgengi að Námfús

Námfús er aðgengilegt bæði í vafra og í appi fyrir snjalltæki.

  • Vefur: Námfús
  • Appið er að finna í App Store og Google Play með því að leita að „Námfús“.

Við hlökkum til að taka Námfús í notkun með nemendum og forráðamönnum og þökkum fyrir þolinmæði og samstarfsvilja á meðan nýtt kerfi kemst í fulla virkni.

 

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla