Nýtt starfsfólk
Guðlaug Sjöfn Jónsdóttir tók við starfi Drafnar Rafnsdóttur, aðstoðarskólastjóra, Dísa Edwald tók við umsjónarkennslu hjá Urriðum af Maríu Önnu og Gunnlaug Olsen tók við nýbúakennslu af Dröfn.
Við viljum þakka Dröfn og Maríu Önnu fyrir samstarfið og óskum þeim farsældar í þeim verkefnum sem þær hafa tekið sér fyrir hendur en þess má geta að Dröfn er nú kennsluráðgjafi fyrir kennslu nýbúa í Reykjanesbæ.
Einnig viljum við bjóða Sigríði Valsdóttur, sem kom til starfa í desember, velkomna í starfsmannahópinn. Sigríður er stuðningsfulltrúi hjá 1. og 2. bekk og starfar einnig í frístundaskólanum eftir hádegi.  
Við óskum nemendum og fjölskyldum þeirra gleðilegs árs með þökk fyrir samverustundir á liðnu ári og góð kynni.
Starfmenn Akurskóla
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


