Nýtt þema
Nú eru nemendur að vinna á fullu í nýju þema í landafræði. Til hliðsjónar er bókin Ísland - veröld til að njóta. Byrjað var á því að skipta nemendum upp í 4 til 5 manna hópa. Hver hópur valdi sér jökul, fjall eða vatn til að vinna með. Nemendur söfnuðu sér upplýsingum á veraldarvefnum, í bókum og sumir nota reynslu sína af staðnum.
Nemendur eru að gera greinagerð um staðinn þar sem fram koma helstu upplýsingar um hann. Greinagerðin er síðan límd á karton ásamt myndum og öðru. Þegar nemendur hafa lokið við þetta er komið að skapandi starfi þar sem nemendur munu búa til líkan af staðnum. Þá fáum við að njóta hæfileika og góðmennsku Karólínu, sem er myndmenntakennari við skólann, en í smiðju hjá henni hafa nemendur verið að búa til líkön úr dagblöðum og veggfóðurslími. Þegar allir hópar hafa lokið við sitt verk verður sett upp sýning og fjölskyldum boðið að koma og njóta hennar.

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


