Óskað eftir tilnefningum til Foreldraverðlauna 2011
Foreldraverðlaun Heimilis og skóla 2011 verða veitt 24. maí næstkomandi í Þjóðmenningarhúsinu. Óskað er eftir tilnefningum frá einstaklingum, hópum og félögum sem vilja vekja athygli á vel unnum verkefnum sem stuðla að eflingu skólastarfs og jákvæðu samstarfi heimila, skóla og samfélagsins.
Fólk er hvatt til að líta eftir verðugum verkefnum í nærumhverfinu og tilnefna til Foreldraverðlauna.
Tilnefningar óskast sendar með rafrænum hætti á þar til gert eyðublað sem finna má á heimasíðu samtakanna www.heimiliogskoli.is.
Nánari upplýsingar um Foreldraverðlaun Heimilis og skóla eru á síðu samtakanna undir Foreldraverðlaun. Þar er einnig að finna leiðbeiningar við útfyllingu eyðublaðsins.
Sjá hér auglýsingu um Foreldraverðlaun Heimilis og skóla 2011
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


