Öskudagur 2026
Í dag er Öskudagurinn og skólinn okkar iðar af lífi og gleði. Strax í morgunsárið fyllist húsið af alls kyns kynjaverum, ofurhetjum og ævintýrapersónum þegar nemendur og starfsfólk mæta í sínum flottustu búningum. Það er gaman að sjá hugvit og þá vinnu sem liggur að baki mörgum búningum, margir hverjir heimagerðir sem er skemmtilegt.
Hjá eldri nemendum í 6. til 10. bekk ríkir mikil eftirvænting því hið árlega Menntastríð fer fram af fullum krafti. Nemendur fara á milli fjölbreyttra stöðva þar sem þeir reyna við krefjandi þrautir sem reyna á þekkingu og færni á hinum ýmsu sviðum. Keppnisandinn er í hámarki en um leið er gaman að fylgjast með hversu góð samvinnan er innan hópanna þar sem allir hjálpast að við að leysa verkefnin.
Yngri nemendurnir í 1. til 5. bekk láta heldur ekki sitt eftir liggja. Fyrir þá eru skipulagðar sérstakar stöðvar þar sem margt skemmtilegt er á dagskrá. Þar má finna leiki, þrautir og aðra afþreyingu sem vekur mikla lukku.
Fleiri myndir í myndasafni skólans.
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


