25. febrúar 2009

Öskudagurinn

Öskudagurinn

Þá er öskudagurinn á enda. Nemendur byrjuðu daginn hjá umsjónarkennara en síðan hittust allir nemendur inn í íþróttasal og marseruðu undir styrkri stjórn Jóhönnu danskennara. Þá tók við fatasund hjá nemendum í 8.-9. bekkjum en aðrir nemendur fóru á öskudagsdiskótek.Einnig voru ýmsar stöðvar í boði og var m.a. boðið upp á andlitsmálun og hárgreiðslu, borðtennis, fótaboltaspil, skák, singstar, hattagerð og öskupokagerð. Öskudagurinn gekk vel í alla staði og voru krakkarnir ánægðir með daginn. Komnar eru myndir á myndasafn.

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla