Óvænt uppákoma í Akurskjóli
Við í Akurskjóli erum búin að vera mjög dugleg að undirbúa jólin erum búin að búa til jólagjafir, föndra, baka piparkökur og margt fleira. Í gær var okkur svo boðið að koma inn í sal þar sem Lúlla og nokkrar stelpur úr 9.bekk voru búnar að undirbúa fyrir okkur smá jólaboð/jólaball þar sem dansað var í kringum jólatré. Allt í einu sáum við jólasveina, Grýlu og Leppalúða sem voru á leiðinni til okkar. Sumum brá nú meira heldur en öðrum en voru allir ofboðslega glaðir að fá svona skemmtilega heimsókn. Krakkarnir fengu að spyrja spurninga og svo var dansað í kringum jólatréð. Öll börnin fengu svo mandarínu að gjöf frá jólasveininum.
Við viljum þakka jólasveinunum, Grýlu og Leppalúða kærlega fyrir okkur.
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


